<$BlogRSDURL$>

Monday, May 01, 2006

Ég vil byrja á því að segja takk við alla þá sem komu í salinn síðasta föstudagskvöld, alla sem sendu mér góða strauma og gáfu mér gjafir, óskuðu góðs gengis osfrv. Þetta heppnaðist nú bara ágætlega.. ekkert fullkomið, en í heildina held ég að ég sé bara ánægð! Enda er eiginlega aldrei fullkomið! Nú er bara smotteríslokasprettur eftir í eina viku.. og þá er bara öllu lokið! Skrítið.. veit einhver um vinnu fyrir mig????

Annars verð ég að koma frá mér draumi sem mig dreymdi í síðustu viku:
það var maður sem kom þessu öllu af stað, maður í svörtum kufli sem ég sá aldrei framaní. Hann sendi frá sér illa strauma og ef hann horfði nógu lengi á manneskju, þá varð sú manneskja geðveik og vissi ekkert hvað hún var að gera. Hún gat líka sent áfram þessa strauma, og drepið fólk! Þetta varð svona eins og keðja. Mamma og systur mínar voru svona, og svo var ég á leið í rútu frá reykjavíkur til akureyrar, og flestir í rútunni urðu svona, en svo ef maður var búinn að senda þetta áfram, þá losnaði maður og varð eðlilegur aftur. Svo auðvitað gerðist það að ég fékk þetta í mig, eftir að hafa reynt að fela mig bakvið sætin, og fékk geðveikiskast! Vissi ekkert hvað ég gerði og virðist hafa flippað bara. Datt út og þegar ég rankaði við mér, var mér sagt að ég hefði drepið ákveðna stelpu í skólanum mínum, (sem ég segi ekki hver er, en þekki vel) Svo var stoppað á Blönduósi .. held ég .. þótt það líktist því ekkert, og ég skilin eftir. Allir voru mjög tortryggnir, hræddir og enginn þorði að tala við neinn eða horfa á neinn. Svo var ég skilin eftir þarna,,eða gleymdist og ég þurfti að redda mér áfram, og ætlaði á puttanum, en þorði hvergi í bílinn af ótta við að verða fyrir þessum straumum aftur, og fá þessa geðveiki.. en allir stoppuðu fyrir mér...veit svo ekki hvernig þessi draumur endaði .. því amk man ég ekki meira!!!

Kann einhver skýringu á þessu svakalega rugli? Þetta er náttúrlega ekki eðlilegt!

Spánn eftir 24 daga!! vííí Útskrift eftir 23 daga!! vííí
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com