<$BlogRSDURL$>

Wednesday, April 19, 2006

Ef það er ekki tilefni til að blogga núna..þá veit ég ekki hvað... því ég hef tekið ákvörðun um það að fara til spánar með þokkafullu vinum mínum... jebb..eftir rúman mánuð verðum við orðin bacheloretts með kokteil í hendi á vindsæng í Torriveja..!! Og hinsvegar eftir rúma 2 mánuði verð ég aftur á vindsæng í sjónum eða sundlaug við hótel í Búlgaríu..já..þetta verður ferðasumar..get hreinlega ekki beðið! Sú ferð er í boði ástkæru foreldra minna, þar sem við systur erum allar að útskrifast. mmm...Ljúfa líf!
Það er gott að hafa svona að hlakka til þegar hnúturinn í maganum stækkar á hverjum degi! Það á reyndar að vera gott að taka stressið út fyrirfram..þá kannski nær það að minnka þegar nær dregur tónleikum...sjáum til..
Páskarnir á Akureyri voru annars mjög góðir...og ég ELSKA sundlaugina á Akureyri..það er erfitt að sannfæra mig um að það sé betri sundlaug í Reykjavík amk.!!
trallalallala...
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com